B&L hefur verið umboðsaðili Hyundai á Íslandi frá árinu 1992. Bílarnir náðu fljótlega verulegri hylli hér á landi, en bæði hefur hönnunin hjá Hyundai þótt hitta í beint mark ásamt hagstæðu verði. Það á ekki hvað síst við um hina öflugu 4x4 línu frá Hyundai, sem hefur sótt hratt fram á síðustu árum.
Gæði og áreiðanleiki
Markaðshlutdeild Hyundai hefur á undanförnum misserum mælst allt að 10%. Aukin spurn eftir bílum frá Hyundai hefur átt nána samleið með vaxandi viðurkenningu framleiðandans fyrir gæði og áreiðanleika, en Hyundai hefur á tiltölulga skömmum tíma hlotnast margar af eftirsóknarverðustu viðurkenningum bílaiðnaðarins fyrir gæði og eina lægstu bilanatíðni sem þekkist meðal bílaframleiðenda. Sem dæmi má nefna framúrskarandi árangur Sonata, Tucson og Santa Fe í gæðakönnunum JD Powers og Strategic Vision.
Verðlaun og viðurkenningar
Hyundai hefur ekki aðeins verið að brillera í alþjóðlegum gæða- og áreiðanleikakönnunum. Hér á landi hefur Hyundai átt velgengni að fagna í vali Bandalags íslenskra bílablaðamanna á Bíl ársins, en bæði Santa Fe og Tucson hafa verið valdir Bíll ársins í flokki jeppa og jepplinga. Í þessu vali er m.a. tekið tillit til hönnunar, þæginda, búnaðar, aksturseiginleika, verðs og notagildis. Þessi glæsilegi árangur er langt í frá einsdæmi og hafa flestir af bílunum frá Hyundai notið svipaðrar velgengni bæði austan hafs og vestan.
Eftirtektarverð hönnun
Öflugt rannsóknar- og þróunarstarf Hyundai beinist fyrst og fremst að auknu öryggi, ásamt þróun umhverfisvænni og sparneytnari véltækni. Framúrskarandi aksturseiginleikar Hyundai bíla, koma einnig hér við sögu og þykir árangur Hyundai á því sviði ekki síður eftirtektarverður. Þá er hönnun það svið starfseminnar sem vaxið hefur örast hjá Hyundai, sérstaklega ef litið er til hönnunardeildar Hyundai Motor Europe (HME), höfuðstöðva framleiðandans í Evrópu.
Umhverfisvæn tækni
Þróunarstarf bílaframleiðanda snýst í síauknum mæli að umhverfisvænni véltækni. Hyundai um árabil leitað leiða að framleiðslu bíla, sem eru í senn knúðir umhverfisvænni tækni og á viðráðanlegu verði. Sem dæmi um það má nefna samstarfsverkefni Hyundai Motor America (HMA) við bandaríska orkumálaráðuneytið um framleiðslu á nýrri gerð á vetnisknúðum efnarafali. Gerðar hafa verið tilraunir með rafalinn bæði í Santa Fe og Tucson, sem lofa góðu og varð TUCSON FCEV (Fuel Cell Electrical Vehicle) t.a.m. í öðru sæti í afar athyglisverðum rallakstri umhverfisvænni bíla, sem fram fór í Monaco fyrir nokkru.
Öflugt þjónustukerfi
Hvað Hyundai snertir, þá snúast bílar, smíði þeirra og hönnun ekki eingöngu um framúrskarandi gæði, þægindi og öryggi, heldur einnig um þjónustu við Hyundai eigendur. Eigendur Hyundai bíla geta því gengið að öflugu þjónustukerfi sem vísu, enda leggjum við hjá B&L, mikla áherslu á metnaðarfulla þjónustu og góð samskipti við viðskiptavini. Kynntu þér nánar þá þjónustu og þau fríðindi sem kaup á Hyundai veita þér aðgang að með því að smella hér.