• Heim
  • Hafðu samband
  • Veftré

09 apr. 2010
Léttskoðun er ókeypis nýjung fyrir Hyundai eigendur

Léttskoðun

Léttskoðun er ítarleg öryggis- og viðhaldsskoðun sem framkvæmd er á glæsilegum skoðunarbrautum í nýju Hyundai verkstæði að Sævarhöfða 2 (hús Ingvars Helgasonar ehf.)

        • Fullkomin hemlaprófun
        • Ástand helstu slitflata skoðað og metið
        • Ástand rafgeymis mælt
        • Ástand stýrisbúnaðar, undirvagns og dekkja metið
        • ...eða hvað annað sem þú vilt láta athuga og hægt er að skoða á 20-30 mínútum.

Viðgerðaáætlun
Ef Léttskoðun leiðir í ljós að bíllinn þarfnast viðgerðar gerum við viðgerðaáætlun og verðtilboð. með viðgerðaáætlun er átt við að dreifa aðgerðum nauðsynlegra viðgerða yfir lengra tímabil eftir ástæðum bilunnar.

3+ verðeftirlit
Til að mæta þörfum viðskiptavina með eldri bíla bjóðum við ýmsar ódýrari lausnir. Spyrjið þjónustufulltrúa í verkstæðismóttöku, skoðunarmanninn í Léttskoðuninni eða hringið í þjónustuver okkar og fáið upplýsingar um slíkar lausnir í síma 525 8000.

Engar tímapantanir
Þú getur komið með bíl í Léttskoðun fyrirvaralaust en til að koma í veg fyrir bið og tryggja að þú komist strax að mælum við með því að þú pantir tíma hjá þjónustuveri okkar í síma 525 8000.