• Heim
  • Hafðu samband
  • Veftré

09 apr. 2010
Hyundai kynnir glæsilegan nýjan bíl á bílasýningunni í Genf

Hyundai sýnir nú í fyrsta sinn myndir af alveg nýjum tilraunbíl  i-flow (HED-7) sem orðrómur hefur verið á kreiki um en ekki hefur sést fyrr en núna.
Fljótandi línur nýja bílsins er tónn Hyundai til framtíðar og munu þessar línur verða einkennandi í nýjum gerðum Hyundai bíla sem fyritækið mun kynna á næstu árum.
Útlit nýja bílsins er ekki einungis eftirtektarvert fyrir ávalarlínurnar heldur er vinstuðull bílsins óvenju lágur, aðeins 0,25 Cd, sem á sinn þátt í óvenju lágum CO2 útblæstri eða 85 gr á hvern ekinn kílómetra og eyðslu upp á aðeins 3 lítra á hverja 100 kílómetra.

Hvernig er þetta hægt á svona stórum bíl? Hyundai i-flow er með nýjan drifbúnað sem knúinn er áfram af dísilolíu og rafmagni. Bíllinn er sem sagt dísli Hybrid bíll með nýja 1,7 lítra, tveggja þrepa turbínu, rafmagnsmótor og nýja sérhannaða gerð af Litium Ion-batteríum sem Hyundai hefur unnið að hönnun að á undaförnum árum.

Þessi nýi bíll setur nýja staðla og viðmið í eyðslu og hagkvæmni fyrri bíla í þessum stærðarflokki. Þessi árangur hefur ekki einungist náðst með fullkominni vélatækni heldur er notast við allt það nýjasta á í hönnun og rannsóknum á plastefnum til að létta bílnn sem frekast er unnt og finna nýjar hagkvæmar leiðir sem ef til vill nýtast til framleiðslu á bílum framtíðarinnar.