Hyundai ix35 verður kynntur með nýrri 5 ára ábyrgð á öllum helstu íhlutum bílsins öðrum en slithlutum. Að auki er væntanlegum Hyundai ix35 kaupendum boðið upp á ókeypis 5 ára vegaaðstoð því þrátt fyrir að Hyundai bílar hafi reynst með áreiðanlegustu bílum sem völ er á og það verið staðfest í mörgum könnunum gera óvænt óhöpp ekki boð á undan sér. Eigendur fá þar að auki ástandsskoðanir (Léttskoðun) sér að kostnaðarlausu á ábyrgðartíma bílsins.
Hyundai ix35 er fyrsti bíllinn frá Hyundai sem boðinn er með þetta langri ábyrgð. Rétt er að benda á að 5 ára ábyrgðin gildir ekki fyrir bíla í eigu fyrirtækja.