Nýr Hyundai ix35 er hannaður með það fyrir augum að mæta ört vaxandi kröfum venjulegs fjölskyldufólks sem lítur á bíl sem tæki til að komast þangað sem ferðinni er heitið á öruggan og hagkvæman hátt. Ekki skemmir að hafa útlitið með sér og ferðast í þægindum með stæl.
Á undanförnum misserum hefur Hyundai kynnt í bílum sínum ýmsan búnað sem stuðlar að betri nýtingu eldsneytis. Í Hyundai ix35 er að finna mikið af þessum búnaði, t.d. nýjar vélar sem nýta eldsneytið betur en áður hefur þekkst, rafal sem fer einungis í gang þegar þörf er á og sparar því eldsneyti þessa á milli, gaumljós sem benda ökumann á hvenær hagkvæmast er að skipta um gír til að aksturinn krefjist sem minnstrar orku og „Silica“ hjólbarða með íblöndunarefnum sem minnka viðnám.
Hyundai ix35 verður kynntur með nýrri 5 ára ábyrgð á öllum helstu íhlutum bílsins öðrum en slithlutum. Að auki er væntanlegum Hyundai ix35 kaupendum boðið upp á ókeypis 5 ára vegaaðstoð því þrátt fyrir að Hyundai bílar hafi reynst með áreiðanlegustu bílum sem völ er á og það verið staðfest í mörgum könnunum gera óvænt óhöpp ekki boð á undan sér. Eigendur fá þar að auki ástandsskoðanir (Léttskoðun) sér að kostnaðarlausu á ábyrgðartíma bílsins. Rétt er að benda á að 5 ára ábyrgðin gildir ekki fyrir bíla í eigu fyrirtækja.